Um okkur

Endor er fyrirtæki sem sérhæfir sig í kerfislausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Við sérhæfum okkur í rekstri, hönnun, ráðgjöf og úttektum á staðar- og víðnetum með áherslu á öryggi og rekstrarhagkvæmni.
Við höfum mikla reynslu af rekstri Microsoft kerfa þ.m.t. MS Server, Exchange, SQL, SCE, OCS ásamt öllum notendastýrikerfum frá Microsoft. Einnig höfum við mikla reynslu í Cisco net- og öryggislausnum þ.m.t. Cisco ASA & PIX, Cisco IPS, Cisco WLC ásamt öllum Cisco routerum og svissum.

Við leitumst við að hámarka uppitíma og rekstraröryggi upplýsingakerfa viðskiptavinarins ásamt því að veita persónulega þjónustu fyrir sanngjarnt verð.

Fyrirtækið er lítið og sveigjanlegt, starfsmenn þess snarpir og eru áhugasamir um viðskiptavininn. Starfsmenn eru þrír; Steingrímur Guðmundsson, Microsoft sérfræðingur, Júlíus M. Pálsson, Cisco sérfræðingur og Torfi Áskelsson, framkvæmdastjóri.

Viðskiptavinir okkar eru af öllum stærðum og gerðum og eru jafnt í opinbera geiranum sem og einkarekna. Við erum vel liðnir þar sem við vinnum og myndum gott samband við viðskiptavini okkar.

Endor býður einnig uppá sérfræðinámskeið í Cisco netbúnaði en við erum eitt af 4 fyrirtækjum á Íslandi með Cisco CCIE gráðaðan tæknimann en hann sér um kennslu. Þess má geta að CCIE er ein viðurkenndasta gráða í iðnaðinum í dag og bera einungis 9 einstaklingar hana á Íslandi í dag.

Stefna Endor er að bjóða ávallt uppá bestu þekkingu sem völ er á í rekstri staðarneta og víðnetskerfa.

Kennitala Endor ehf er 590304-2980 og virðisaukanúmer 99360

Til baka